Leita í fréttum mbl.is

Endalaus svikin loforð

Nú er það alveg ljóst að fyrirtæki og stofnanir ætla að hafa að engu tilmæli félagsmálaráðherra um að ganga ekki að fólki af hörku á meðan þetta skelfingarástand ríkir. Það er ljóst að það er gengið að fólki af jafnvel meiri hörku en áður og á meðan róið er að því öllum árum að bjarga fyrirtækjum og stofnunum þá þakka þau fyrir sig með því að ganga að fólki með öllum tiltækum ráðum. Oft hefur maður  fengið ógeð á þessu ástandi en sjaldan eins og núna. Drullusokkshátturinn sem þessar lögfræðistofur stunda hérna á þessu landi er hrikalegur. Bankar og sparisjóðir fylgja svo fast á eftir og ætla ekki að verða eftirbátar og ætla nú með öllum tiltækum ráðum að ganga endanlega frá því fólki sem berst í bökkum í atvinnuleysi og verðhækkunum. Ég vona bara að meiraprófsrukkararnir sofi vel og nóti þess að eyðileggja framtíð okkar sem ennþá ætluðu að vera hér áfram. Hins vegar vona ég að ungt vel menntað fólk fari sem fyrst úr landi og finni sér bjartari framtíð en hér er von á. Hér er engin framtíð, það er alveg á hreinu. Mér er alveg sama þó hugsanlegum lesendum finnist þessi skrif bera vott um mikla svartsýni og sjálfsmeðaumkun en svona er þetta ástand hveort sem fólki líkar það betur eða verr. Það á að ganga til bols og höfuðs almennings og þeir sem geta ekki borgað geta bara étið skít.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Þráinn Brjánsson
Þráinn Brjánsson
Starfaði sem sjómaður og er hreint gáttaður á þessu ástandi sem við búum við

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 10
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 29
  • Frá upphafi: 329

Annað

  • Innlit í dag: 10
  • Innlit sl. viku: 29
  • Gestir í dag: 10
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband