Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2008

Vafasöm mótmæli

Það var ekki laust við að ég fengi kjánahroll þegar ég horfði á fréttir Stöðvar 2 í kvöld þar sem fjallað var um mótmæli gegn handtöku pilts sem var eftirlýstur að mér skilst. Það að sjá fullorðið fólk berja á dyr og brjóta glugga á lögreglustöðinni en eftir nokkur læti brást lögreglan við með því að sprauta piparúða yfir fólkið og hlutu margir veruleg óþægindi vegna þessa. Mér finnst einhvern veginn að þetta mál sé ekkert mjög flókið en ef lögreglan stendum frammi fyrir því að fullt af æstu fólki er að reyna að brjótast inn í lögreglustöðina þá hljóta þeir að bregðast við með einhverjum hætti einfaldlega til þess að verja sig. Það eru jú lög í landinu og eftir þeim verður að fara hvað sem okkur finnst um það og ég held að fólk ætti að mótmæla með einhverjum öðrum hætti en skrílslátum. Málið er nefnilega að við kunnum ekkert að mótmæla og þar af leiðandi kann lögreglan ekki að bregðast rétt við mótmælum, þannig er þetta bara. Ég veit ekki með ykkur en mér finnst hundleiðinlegt að horfa á skrílslæti hvar sem þau eru og mér er sama hverjir eiga í hlut. Ofbeldi hefur aldrei leyst nein vandamál og undangengin dæmi sanna að við erum fljót að fordæma ofbeldið í fréttunum undanfarið svo við ættum að hugsa okkur um áður en við verðum þáttakendur.

Þorvald í Seðlabankann !

Jæja það er kannski fullmikið af því góða að fara að röfla um ráðamenn þjóðarinnar eina ferðina enn. Var að horfa á borgarafundinn í sjónvarpinu áðan og þar sátu blessaðir ráðherrarnir okkar eins og dæmdir menn a meðan frummælendur jusu úr skálum reiði sinnar. Eitt finnst mér alveg makalaust samt  en það er af hverju er ekki Þorvaldur Gylfason orðinn seðlabankastjóri eða í öllu falli ráðherra? Ég tel að þessi maður sé okkar albesti kostur í starf seðlabankastjóra því þetta er óhemju klár maður og skýrir hlutina fyrir fólki á mannamáli. Nei frekar skulum við halda Davíð þarna og leyfa honum að vinna enn meiri skaða.

breska flugsveit hingað? NEI TAKK!

Hvað ætla íslendingar að láta vaða yfir sig lengi? Ég hélt að ráðamenn þjóðarinnar væru búnir að sjá hvaða viðhorf bresk stjórnvöld hafa til íslendinga og það viðhorf kemur ekki til með að breytast sýnist mér. Sem íslendingur hef ég engan áhuga á að hafa hér breska flugsveit og vona ég að þeir haldi sig heima og ég get ekki skilið að þeir vilji nokkuð með það hafa að þjóna hryðjuverkamönnum? Mér finnst þetta bara svo yfirmáta vitlaust að það nær ekki nokkurri átt.

hverjum er ekki sama!

Einhvernveginn gæti mér ekki verið meira sama um hvernig heilsufarið er hjá þessum blessaða manni sem hefur kúgað sína þjóð alla sína valdatíð.
mbl.is Ljósmynd vekur upp umræður um heilsufar Kim Jong-il
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sama gamla tuggan

Nú eru þeir Geir og Björgvin að halda enn einn blaðamannafundinn og ekkert er þar nýtt heldur er þetta sama gamla tuggan aftur og aftur. Þeir tala um að það sé reiði í þjóðfélaginu (skarpir) en þeir hafi orðið varir við mikla bjartsýni og dugnað hjá þjóðinni. Hins vegar ekkert talað um hvað eigi að gera og sama gamla tuggan heyrðist að þeim tilmælum hefði verið komið til stofnanna og banka að sýna skuldurum skilning og gangi ekki of hart fram í innhemtuaðgerðum. Gott og vel en tilmæli eru bara tilmæli og ekkert sem segir að viðkomandi fari eftir því, þvert á móti heyrir maður meira og meira af því að harðar sé nú gengið í innheimtuaðferðum, skemmst er að minnast dæmis þar sem Intrum bauð viðskiptavini að hraða innheimtu. Það er ekki nóg að koma fram og lofa öllu fögru á meðan ekkert er að baki þessum loforðum. Þeir skulu fá að vita að þessi reiði er ekki eitthvað sem hverfur á nokkrum vikum þó þeir reyni hvað þeir geta til að draga fólk á asnaeyrunum og fraga máttinn úr fólkinu, það má ekki gerast.

Færeyingar.

Eitt langar mig að minnast á en fréttir af stuðningi frá færeyingum segja manni hverjir eru vinir okkar íslendinga. Það er alveg með ólíkindum að þessi litla frændþjóð okkar er alltaf tilbúin að koma okkur til aðstoðar á hverju sem gengur. Við gleymum ekki miklum stuðningi þeirra eftir snjóflóðin miklu á vestfjörðunum og alltaf þegar eitthvað hefur bjátað á rétta þeir okkur hjálparhönd. Oft hefur maður heyrt íslendinga tala frekar niðrandi um færeyinga en nú ættum við að vera þakklát og fara að virða þessa þjóð eins og hún á skilið. Ég hef verið svo heppinn að koma til færeyja og naut þar mikillar gestrisni og hafði mjög gaman af veru minni þar. Kærar þakkir til færeyinga .

Hvað er að gerast?

Hvað eru stjórnvöld að gera fyrir fólkið í landinu sem er að missa allt út úr höndunum? Nákvæmlega ekkert, það er alveg á hreinu að nú ætla stjórnvöld að nota gömlu aðferðina sína þá að láta tímann líða og láta fólk missa móðinn og hætta að gera athugasemdir við þetta ástand, þetta hafa stjórnvöld gert allt of oft og nú má ekki láta þetta gerast aftur. Mikið óskaplega eru stjórnvöld heppin með að við íslendingar erum eins langþreyttir og við erum því ef þetta væri svona í einhverju landi sem við köllum vanþróað þá væri búið að fangelsa alla þessa útrásarvíkinga og henda lyklinum. Það er ekki einu sinni hægt að kalla landið okkar bananalýðveldi því þau ríki sem við köllum slík bregðast allavega við og taka stjórnvöld og menn sem hafa hagað sér svona í fjármálum úr umferð. Ég krefst þess sem þegn þessarar þjóðar að stjórnin víki! stjórn Seðlabankans á að víkja! draga á menn til ábyrgðar og það strax. Það er alveg á hreinu að það er landflótti í aðsigi og er ég ekki hissa, ég gæti trúað því að þúsundir flyttu af landi brott og það er bara hið besta mál, ráðamenn þjóðarinnar ætla sér ekkert að gera og koma fram við íbúa þessa lands með hroka og yfirgangshætti og hlusta ekki á fólkið og munu ekki gera það. Þá er engin ástæða til að vera hér lengur og mun gáfulegra að fara eitthvað þar sem komið er fram við fólk eins og manneskjur.

DV í dag

Ótrúlegt er að sjá forsíðu DV í dag. Þar eru hjónin Kristján Arason fjármálajöfur og Þorgerður menntamálaráðherra og þar er verið að tala um að þau haldi vonandi húsinu sínu en ævisparnaðurinn sé farinn. Búúúúhúúú!!! er eitthvað merkilegra að þetta fólk sem hefur nú verið á sæmilegum launum hingað til hafi tapað fé undanfarið?? þarna kemur fram að þau hafi tapa peningum á vitlausum fjáfestingum sem litu jú afar vel út í góðærinu en reyndust ekki alveg standa undir væntingum. Þau ættu að hafa eitt í huga, megnið af því fólki sem er að brjast fyrir fjárhagslegri framtíð sinni þessa dagana hefur ekki verið með nándar nándar nærri þau laun sem þau hafa haft sem eru að minnsta kosti 2 milljónir á mánuði, það þori ég að fullyrða. Það fólk sem berst í bökkum núna EIGA ekki húsin sín og íbúðirnar og eru að missa sitt heimili. Menntamálráðherra sagði í sjónvarpinu um daginn "við erum ekki gjaldþrota, við eigum þó minna en það er bara eins og í lífinu" hins vegar segi ég við hana, komdu þér í einhver tengsl við það sem er að gerast og áttaðu þig á hvað fólk er að ganga í gegn um !!!!

Hver andsk....!!!

Nei nú er mælirinn fullur, hvað í andskotanum halda menn að fólkið í landinu láti bjóða sér endalaust! er ekki nóg með að þessir útrásarskítalabbar hafi set allt á hvínandi kúpuna, eiga þeir nú að fá niðurfelldar skuldir upp á tugi milljarða króna? Ég neita að taka þátt í þessari djöfulsis vitleysu lengur! Nú eiga ráðamenn þjóðarinnar að gera eitthvað róttækt eða pakka saman og hætta þessu rugli. Ég yrði ekki hissa þó að borgarastyrjöld væri í aðsigi, allavega er full ástæða til. Nú skulum við ekki láta bjóða okkur svona kúaskít lengur. Ég veit ekki hvernig á að láta ráðamenn taka eftir því sem þjóðin er að tala um, það getur bara ekki verið að þeir séu á sömu plánetu og við hin??. Þeir ætla sér efalaust að draga þetta á langinn og reyna að draga kraftinn smá saman úr okkur en við skulum ekki láta það viðgangast, það er greinilegt að það er ekkert lýðræði og jafnræði í þessu landi lengur, ráðamenn og þeir sem hafa sett þetta samfélag okkar á hausinn eru greinilega skör hærra settir en við hin svo við skulum bara taka slaginn og bregðast á móti með öllum aðferðum. 


Afskriftir

Þá eru stóru strákarnir enn og aftur komnir í fréttirnar og þá fyrir að skuldir þeirra við KB hafi verið afskrfaðar, ég veit svosem ekki hvort maður ætti að skottast upp í banka og kanna hvort þeir séu til í að afskrifa það sem maður skuldar? held samt að það gæti orðið snúið. Nú verður gaman að sjá hvernig  verður brugðist við ef rétt er að þessar afskriftir hafa átt sér stað, látum við enn bjóða okkur það að troðið sé á okkur þó að það sé reyndar orðinn vani og íslendingar viðast ekkert kippa sér upp við að verða fyrir svona meðferð. Ég vona bara þrátt fyrir allt að stjórnvöld taki sig saman og komi fólki sem er að missa allt til hjálpar og ekki þætti mér það skrítið að hjónaskilnuðum fjölgi hratt þessa dagana þar sem fólk ræður ekki við neitt og allt þetta ástand bitnar fyrst og fremst á fjölskyldunni. F'olkið í landinu kann þetta ekki, hefur aldrei upplifað þetta og þarf hjálp. Það er fjölskylda hins venjulega íslendings sem riðar til falls og fellur ef ekkert verður að gert. Það er alveg á hreinu að núverandi stjórnvöld ráða ekki við ástandið og nú þurfum við að taka saman höndum og bjarga því sem bjargað verður svo fjölskyldur í landinu geti lifað venjulegu lífi og sundrist ekki af tómum fjárhagsáhyggjum og framtíðaráhyggjum. Nú fer í hönd mesti verslunartími ársins og grunar mig að það verði ekki stór jólaverslun og margir eiga efalaust eftir að upplifa öðruvísi jól en vanalega.

Höfundur

Þráinn Brjánsson
Þráinn Brjánsson
Starfaði sem sjómaður og er hreint gáttaður á þessu ástandi sem við búum við

Bloggvinir

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband