Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, maí 2008

Sjómannadagurinn ??

Jæja þá er sjómannadagurinn framundan og mér sýnist sem þessi dagur sé ekki orðinn nema skugginn af sjálfum sér. Hér í eina tíð var þetta einn af stóru dögunum á árinu en nú er ekkert um að vera að minnsta kosti ekki hér á Akureyri. Mér finnst sem flestir sjómenn séu búnir að missa allar taugar til þessa dags en það hefur verið reglan að þennan eina dag ársins erum við hetjur hafsins og þar fram eftir götunum en alla aðra daga bölvaðir drullusokkar. Allavega veit ég að það eina sem sjómenn ætla sér að gera er að margar áhafnir hyggjast koma saman og grilla með fjölskyldunni og hafa gaman þar sem ekkert verður úr uppákomum öðrum. Sjómenn líta á þetta meira sem kærkomið frí þó ekki sé um langt frí að ræða. Mér finnst þetta persónulega til vansa þar sem mér finnst mikill sjónarsviptir af þessum degi og þá fyrst og fremst fyrir fólkið í landi en eldra fólk sem ég hef rætt við man meira eftir hátíðarhöldum vegna sjómannadags heldur en til dæmis 17. júní. Það var venja að útgerðirnar buðu fólki í siglingu um fjörðinn og var yfirleytt troðfullt í þessar siglingar og mikið fjör svo ekki sé minnst á kappróðurinn. Af þessum föstu liðum sem voru á sjómannadaginn held ég að sjómannamessan sé það eina sem eftir er. Vonandi verður þessi dagur einhverntímann aftur hafinn til vegs og virðingar enda eiga sjómenn og fjölskyldur þeirra það sannarlega skilið.

Baggalútur hvað!!:):)

Þessi frétt gæti vel verið að finna á besta fréttavef landsins baggalutur.is, er þetta ekki einhver "ismi" sem hrjáir mannskepnuna eins og svo margir aðrir en voðalega hlýtur þetta að vera erfitt fyrir blessaðan manninn en hvernig komst þetta eiginlega í umræðuna og hvernig hefur hann mök við bíl ????
mbl.is Játningar karlmanns: Hefur svalað sér á þúsund bílum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Höfundur

Þráinn Brjánsson
Þráinn Brjánsson
Starfaði sem sjómaður og er hreint gáttaður á þessu ástandi sem við búum við

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 13
  • Frá upphafi: 313

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 13
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband