Leita í fréttum mbl.is

DV í dag

Ótrúlegt er að sjá forsíðu DV í dag. Þar eru hjónin Kristján Arason fjármálajöfur og Þorgerður menntamálaráðherra og þar er verið að tala um að þau haldi vonandi húsinu sínu en ævisparnaðurinn sé farinn. Búúúúhúúú!!! er eitthvað merkilegra að þetta fólk sem hefur nú verið á sæmilegum launum hingað til hafi tapað fé undanfarið?? þarna kemur fram að þau hafi tapa peningum á vitlausum fjáfestingum sem litu jú afar vel út í góðærinu en reyndust ekki alveg standa undir væntingum. Þau ættu að hafa eitt í huga, megnið af því fólki sem er að brjast fyrir fjárhagslegri framtíð sinni þessa dagana hefur ekki verið með nándar nándar nærri þau laun sem þau hafa haft sem eru að minnsta kosti 2 milljónir á mánuði, það þori ég að fullyrða. Það fólk sem berst í bökkum núna EIGA ekki húsin sín og íbúðirnar og eru að missa sitt heimili. Menntamálráðherra sagði í sjónvarpinu um daginn "við erum ekki gjaldþrota, við eigum þó minna en það er bara eins og í lífinu" hins vegar segi ég við hana, komdu þér í einhver tengsl við það sem er að gerast og áttaðu þig á hvað fólk er að ganga í gegn um !!!!

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Kristján er sagður hafa haft 19 milljónir á mánuði í laun

Hólmdís Hjartardóttir, 4.11.2008 kl. 23:46

2 identicon

Þráinn fín færsla hjá þér. Menntamálaráðherra er vanhæf eins og Kiddi sleggja segir á heimasíðu sinni í kvöld.

Páll Höskuldsson (IP-tala skráð) 4.11.2008 kl. 23:53

3 Smámynd: Þráinn Brjánsson

Vanhæfni hennar er yfirgengileg sem og hjá fleiri embættismönnum, bara að þeir gerðu sér einhverja grein fyrir því

Þráinn Brjánsson, 5.11.2008 kl. 01:44

4 identicon

já þessir bullurokkar ættu bara að vinna á okkar launum svona eins og eitt ár eða svo .  Ætli þeir færu þá ekki að væla?

Unnur María Hjálmarsdóttir (IP-tala skráð) 5.11.2008 kl. 18:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Þráinn Brjánsson
Þráinn Brjánsson
Starfaði sem sjómaður og er hreint gáttaður á þessu ástandi sem við búum við

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 30
  • Frá upphafi: 372

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 30
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband