Leita í fréttum mbl.is

Aldrei má maður ekki neitt!

Jæja þá er það á hreinu að heimsendir varð ekki að þessu sinni. Ekki það að maður hafi verið búinn að búa sig sérstaklega undir það eins og margir en þessi umræða undanfarið um þessa eðlisfræðitilraun hefur verið með ólíkindum og maður hefur hreinlega orðið gáttaður á því hvernig fólk getur látið. Mér hefur oft fundist að maður sé að lesa eitthvað frá Baggalúti enda tækla þeir frábæru fréttamenn hlutina  á talsvert annann hátt en aðrir. Nú fer fólk bara að velta sér uppúr einhverju öðru og verður fróðlegt að sjá hvað það verður. Ég asnaðist til þess um daginn að fara inn á bloggsíðu um daginn þar sem var verið að spá í það hjá hvaða símafyrirtæki væri best að vera með nettengingu og ég léði máls á því að þú ert í raun alltaf hjá Símanum hvort sem þú skráir þig hjá þeim eða einhverjum öðrum þar sem Síminn á allt þetta drasl og sér um að tengja þetta. Ekki voru allir sammála mér og fékk ég mykju í talsverðu magni yfir mig frá nokkrum aðilum en ég held þó að allir sem vilja vita viti að þetta er rétt hjá mér. En ég svosem tók þetta ekkert voðalega nærri mér, ekkert mál að skola af sér mykjuna. Andskoti er samt svekktur yfir því að hafa ekkert komist í gæs og hér með lýsi ég eftir túni eða akri fyrir einn kall

og hana nú!

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Þráinn Brjánsson
Þráinn Brjánsson
Starfaði sem sjómaður og er hreint gáttaður á þessu ástandi sem við búum við

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (1.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 22
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 22
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband